IceFemIn tók þátt í ráðstefnunni Women Political Leaders Global Forum (WPL) sem haldið var í Hörpu 26. – 28. nóvember 2018. Við hélum fund undir dagskrárliðnum Leaders Talks en innan hans voru margir samhliða fundir sem stóðu yfir í um 1,5 klukkustund. Á fundinum var rætt um reynsluna af Kvennalistanum og þær breytingar sem orðið hefðu á hinum pólitíska vettvangi á Íslandi á undanförnum árum og áratugum.